En hvað með Norðmenn?

Norskur vinur minn spyr mig í algjöru sakleysi í gær: "Af hverju eruð þið að taka lán frá Rússum þar sem BÓKAÐ er að eitthvað hangir á spýtunni, þegar mínir ráðamenn (þeir Norsku) eru búnir að bjóðast til að lána Íslandi þessar sömu 4 Milljarða NOK eða hvað það nú var, sem Rússarnir eru að bjóða? Það hlýtur alltaf að hanga minna á spítunni þegar grannaþjóð býður sína hjálp, heldur en stórveldið Rússland og herra Pútín sem engin treystir."

Ég verð því að spyrja eins og Per gerði svo skilmerkilega, af hverju í ósköpunum erum við að taka þetta lán frá Rússum ef við getum fengið það frá Norðmönnum? Er ekki allt í lagi?


mbl.is Gísli Marteinn: Vill frekari skýringar á Rússaláni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: H G

Árni! - Norðmenn buðu  Einn Áttuna hluta þeirrar upphæðar sem semja á um við Rússa. Það hefur alls ekki verið afþakkað, fremur en önnur aðstoð frá Norðurlöndum, heldur sagt að beðið yrði og séð til hvort þörf yrði fyrir meiri fjárhagsaðstoð.

H G, 12.10.2008 kl. 13:16

2 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Okay, gott mál. Þá þurfum við bara að taka 7/8 að láni frá Rússum. Að mínu mati á að fá sem mest frá öðrum og rest frá rússum, ekki öfugt.

Það má vel vera þröngsýnt af mér, en ég treysti ekki Pútín lengra en ég get kastað honum, og ég er hræddur um að ég kasti honum alls ekki langt.

Árni Viðar Björgvinsson, 12.10.2008 kl. 23:36

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Rússland Pútíns er auðvitað allt annað en Sovétríkin gömlu, en þó voru nógu margir hræddir við þau. Íslandingar hafa alltaf átt góð samskipti við rússana. Við sendum þeim úldinn harðfisk og þeir okkur olíu í staðinn. Aldrei kvörtuðu þeir og aldrei reyndu þeir að gera okkur að kommum. Ég vil mikið frekar sjá rússalánið en IMF, því þar fara alvöru glæpasamtök. Allavega ef maður á að trúa sögunum um þá.

Villi Asgeirsson, 17.10.2008 kl. 11:46

4 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Já, ekki vil ég meina að ég vilji frekar sjá IMF þar sem ég hef heyrt nákvæmlega ekkert gott og fullt af slæmu um það batterí, en ég myndi samt frekar vilja fá lán hjá öðrum Skandinavíulöndum til dæmis, heldur en að fá lán frá jafn stóru herveldi og Rússland er; sérstaklega í ljósi þeirra vandræða sem eru nú þegar í gangi þeim megin á hnettinum. Rússar eru eflaust ekki alslæmir, og nánast 100% betri en IMF, en samt...

Árni Viðar Björgvinsson, 17.10.2008 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Um allt og ekkert

Bloggið fjallar svosem um allt og ekkert. Bara ég að henda fram skoðunum mínum og hugsunum, og vonandi mun einhver nenna að lesa þær :)

Bloggari

Árni Viðar Björgvinsson
Árni Viðar Björgvinsson
er áhugamaður um gott líf og jákvæða framtíð, þrátt fyrir allar líkur á því að hvorugt takist :)

Bloggvinir

Bækur

sem ég er nýbúinn að lesa

  • Bók: Harry Potter and The Goblet Of Fire
    J.K. Rowling: Harry Potter and The Goblet Of Fire
    Þetta er nú sennilega í fimmtánda skipti eða eitthvað. Alltaf jafn gott ;)
    *****

sem ég er að lesa þessa dagana

  • Bók: Belgarath The Sorcerer
    David & Leigh Eddings: Belgarath The Sorcerer
  • Bók: Harry Potter and The Order Of The Phoenix
    J.K. Rowling: Harry Potter and The Order Of The Phoenix
    *****

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 327

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband