25.10.2008 | 17:18
Bók: Carl Hiaasen - Double Whammy
Carl Hiaasen er rithöfundur frá Flórída og er mikill áhugamaður um umhverfismál, auk þess sem finnst að það sé búið að ofbyggja Flórídaskaga og Everglades. Þetta skín í gegn þegar maður les bækur hans, sem margar hverjar gerast þar í kring.
Bækurnar eru oftast svona Bannað Innan 16 efni, með mjög grófum lýsingum á blóðugum dauðdögum, en söguþráðurinn er hins vegar ekki bara gore og viðbjóður.
Double Whammy fjallar um Bass (Vartari? Hvað er það?) veiðimenn sem gera hvað sem er til þess að sigra í stórmótum.. svindla eða jafnvel meira. R.J. Decker er einkaspæjari og er ráðinn til þess að taka myndir af svindli og ná sönnunargögnum svo hægt sé að stöðva svindlið. Eins og búast má við af Carl Hiaasen, þá vefur það heldur betur upp á sig með tilheyrandi limlestingum og annarri gleði.
Það er hins vegar aldrei langt í húmorinn þrátt fyrir dökka efnið, og stóð ég mig mjög oft að því að hlægja upphátt.
Þessi bók gæti reyndar farið alveg með suma sem ekki hafa nokkurn áhuga á fiskveiði, því stór hluti bókarinnar snýst um veiðistangir, öngla, orma og hvað þetta heitir allt saman, en mér fannst það ekkert draga frá heildar textanum. Óvæntur glaðningur í þessari bók er innkoma hins stórskemmtilega Skink, sem á það til að detta inn í bækur Carl's, og væri hann einn og sér fær um að halda uppi húmornum í bókinni :)
Heilt yfir er þetta alveg stórskemmtileg bók , og hika ég ekki við að mæla með Carl Hiaasen sem stórskemmtilegum spennubókarithöfundi.
4/5 í einkunn.
Flokkur: Umfjallanir - Bækur | Facebook
Um bloggið
Um allt og ekkert
Bækur
sem ég er nýbúinn að lesa
-
: Harry Potter and The Goblet Of Fire
Þetta er nú sennilega í fimmtánda skipti eða eitthvað. Alltaf jafn gott ;)
sem ég er að lesa þessa dagana
-
: Belgarath The Sorcerer -
: Harry Potter and The Order Of The Phoenix
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.