Þetta snýst eingöngu um vana..

Ég er búinn að vinna með og nota tölvur með stýrikerfi síðan ca. 1990. Semsagt, í næstum 20 ár. Ég kóðaði minn fyrsta tölvuleik á þessum tíma, enda þótti það bara sjálfsagt að kaupa bók með forritum og leikjum, og forrita það síðan inn í tölvuna. Að sjálfsögðu var þetta allt á Ensku.

Þó að ég sé kannski frekar óvenjulegur að því leyti að ég er mjög hrifinn af Enskunni sem tungumáli, og sé með (oft fáránlega) stóran orðaforða í Ensku, þá er ég alveg gríðarlega ánægður með Íslenskuna sem tungumál, og finnst ekkert leiðinlegra en ljótar slettur og léleg málfræði.

Tvö verstu orð í Íslenskri tungu, eru "Einhvað" og "Eitthver", og því miður sé ég þetta á hverjum einasta degi, hjá fólki á aldrei alveg upp yfir þrítugt. Þetta er sorglegt að sjá og smán fyrir Íslenskukennslu þjóðarinnar! En ég er kominn út fyrir efnið.. "I digress", eins og sagt er á Enskunni.

Þessi tæp 20 ár í tölvunotkun hafa að sjálfsögðu öll farið fram á Ensku, og þetta er svo slæmt að þegar ég sé Íslenskt þýddan hugbúnað þá langar mig bara hreinlega að æla. Þetta er bara hreinn og klár viðbjóður, og það er alls ekki hægt að vinna með þetta! En hvað liggur að baki þessum skoðunum?

Vani heitir það. Vani, og ekkert annað. Og ekki hjálpar að ég er Naut og því ennþá vanafastara en ella. Ég geri mér alveg grein fyrir því að Íslenska þýðingin er örugglega ágæt, en ég veit nákvæmlega hvar allar stillingar eru og hvað þær heita Á ENSKU, og ef ég þarf að vinna eitthvað með stýrikerfið á Íslensku þá finn ég bara bókstaflega ekki neitt. Ég myndi sjálfsagt geta vanist Íslenskunni ef ég ætlaði mér það og vildi, en ég sé minna en engan tilgang með því að draga úr starfs- og afkastagetu minni með slíkri vitleysu.

Ég stend núna í því, eins og nokkrir aðrir Facebook notendur, að þýða Facebook yfir á Íslensku. Orð fyrir orð, setningu fyrir setningu, erum við að þýða Fésbókina algjörlega yfir á hið ástkæra ylhýra. En það merkilega við þetta er að þarna pirrar Íslenskan mig bara miklu minna. Mjög sennilega vegna þess að ég er bara búinn að nota Facebook í svo stuttan tíma, og því eru enskar skipanir og slíkt ekki ennþá komnar upp í vana. Að sama skapi er alltaf verið að fikta í uppröðuninni og stillingunum fyrir bókina, sem aftur hjálpar til við að halda óreglunni gangandi. Ég er því klárlega alls ekki heilt yfir á móti Íslensku í tölvum.. bara þar sem hún er 'fyrir mér'. Smile

Hvað varðar það mál að setja Íslenskuð stýrikerfi og Office pakka í skóla Íslands, þá er það alveg gríðarlega tvíeggjað sverð. Ef við mötum börnin okkar endalaust á Íslenskunni, þá verða þau ómálga og óskrifandi á Enskuna. Ef við Íslenskum ekkert, þá verða þau ómálga og óskrifandi á Íslenskuna. Hvort er skárra?

Þjóðerniskenndin segir að auðvitað sé betra að Íslendingar tali sem besta Íslensku, en mér segir svo hugur að hvort stýrikerfið sé á Ensku eða Íslensku hafi lítið með það að gera. Það sem okkur vantar eru kennarar sem nenna að kenna Íslensku og hætta að gefa eftir. Það var svartur dagur í sögu þjóðar þegar kennara hreinlega gáfust upp á þágufallssýkinni og skelltu "Mér langar í.." í orðabók sem löglegri setningu. GetLost


mbl.is Innan við fimmtungur velur íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Um allt og ekkert

Bloggið fjallar svosem um allt og ekkert. Bara ég að henda fram skoðunum mínum og hugsunum, og vonandi mun einhver nenna að lesa þær :)

Bloggari

Árni Viðar Björgvinsson
Árni Viðar Björgvinsson
er áhugamaður um gott líf og jákvæða framtíð, þrátt fyrir allar líkur á því að hvorugt takist :)

Bloggvinir

Bækur

sem ég er nýbúinn að lesa

  • Bók: Harry Potter and The Goblet Of Fire
    J.K. Rowling: Harry Potter and The Goblet Of Fire
    Þetta er nú sennilega í fimmtánda skipti eða eitthvað. Alltaf jafn gott ;)
    *****

sem ég er að lesa þessa dagana

  • Bók: Belgarath The Sorcerer
    David & Leigh Eddings: Belgarath The Sorcerer
  • Bók: Harry Potter and The Order Of The Phoenix
    J.K. Rowling: Harry Potter and The Order Of The Phoenix
    *****

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 276

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband